Boston –> Costa Rica

19 08 2009

Ok Boston var fín. Allir sjúklega elskulegir. Fórum í H&M og sáum seleb, blindi gaurinn úr American Idol og jú hann var að skoða föt, blindur í H&M, það var reyndar eikker stelpa með honum. en hann fór nú frekar mikið í taugarnar í ædolinuá mér væminn og að mér fannst hann frekar hæfileikalaus… það verður nú að segjast. En þessi: Alexis Cohen var alveg með þetta en hún dó um daginn var farinn að hlakka til að sjá hana aftur í vetur rífandi kjaft R.I.P. http://www.youtube.com/watch?v=LimOXvLszwU.Any who þá fengum við skástu máltíðina í Boston á flugvellinum útúrsteraða kjúklingavængi sem voru eins og læri og smáborgara og franskar og það var barasta bragð af matnum en vatn með því kókið er ónýtt. Kaffið var líka drasl nema Mocha-Frappuchino á Starbucks…með rjóma ég, Röggi, var hýrasti íslendingurinn á svæðinu með Mocha-Frappuchino á röltinu. Flugið yfir gekk ágætlega smá ókyrrð og sonna. Stoppuðum í New Jersey til að skipta um flug en sáum þá bara í staðinn New York útum flugvélagluggann (öfund, öfund Inga Helga:) erum mætt í íbúðina sem við komum til með að vera í núna næstu mánuði. Avacado tré við hurðina! Sturtan er efni í heilt blogg segi betur frá því á morgunn!


Aðgerðir

Information

One response

24 08 2009
Helga María

Vá, hvað mér líst vel á ykkur með blogg! Ég hlakka til að fylgjast með ykkur hérna 🙂 En shiiiii… ég vissi ekki að Alexis væri dáin (snökkt) Hún klárlega stóð upp úr í áheyrnarprufunum og vakti mikla lukku á þessu heimili! F**k you Simon! 🙂 RIP

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s




%d bloggurum líkar þetta: